Bílalánamótmæli, þriðjudag kl 12:15 !

Borgarahreyfingin vill hvetja alla til að sýna samstöðu og mæta fyrir utan Íslandsbanka á morgun, þriðjudag kl 12:15 !

Við söfnumst saman kl 12:15 hjá Íslandsbanka Kirkjusandi. Við flautum í 3 mínútur hið minnsta.

Við breytum um takt og mótmælum aðeins hjá einni fjármagnsstofnun í hverri viku hér eftir.
 
Það sem Íslandsbanki er að bjóða er aðeins sjónhverfing, aðeins er verið að lengja í hengingaról skuldsettra einstaklinga og fjölskyldna sem tóku bílalán hjá ónýtu bankakerfi á Íslandi.

Lesa meira Bílalánamótmæli, þriðjudag kl 12:15 !

 

Kröfufundur á laugardaginn

Borgarahreyfingin minnir fólk á eftirfarandi :

Hagsmunasamtök heimilanna og Nýtt Ísland vilja enn á ný boða til kröfufundar á Austurvelli næstkomandi laugardag kl. 15:00.  Mótmælt verður tregðu stjórnvalda og aðgerðarleysi varðandi lánakjör heimilanna.

Samtökin hafa nú þrýst á stjórnvöld um allangt skeið og gert tilraunir til að ná samvinnu með þeim til að leiðrétta stökkbreyttan höfuðstól lána og setja þak á frekara tjón, en stjórnvöld fría sig ábyrgð og hafa vísað málum til fjármálafyrirtækjanna. Nú er svo komið að bankarnir bjóða upp á
blekkingarleik, auglýsa leiðréttingar á höfuðstól sem síðan sannast að hafa í för með sér hærri vexti og í flestum tilfellum litlar sem engar leiðréttingar þegar á heildina er  litið.

Lesa meira Kröfufundur á laugardaginn

   

Tökum þátt í umræðunni...

Eins og glöggir lesendur síðunnar hafa tekið eftir þá hefur útlit síðunnar tekið breytingum að undanförnu og má segja að frá og með deginum í dag verði hún í sífelldri þróun til betri vegar þannig að hún geti reynst áhugaverðari og aðgengilegri en nokkru sinni fyrr. Síðan hefur strax sýnt aukinn heimsóknarfjölda og er það von okkar allra að hún muni bara eflast í kjölfarið með virkri þátttöku þeirra sem heimsækja síðuna og taka þátt í umræðunni.

Hér á síðuna hafa verið teknir upp hlekkir á borð við "Spjallið" og "Greinar". Tilgangurinn með slíkum hlekkjum er að gera síðuna gagnvirkari en um leið málefnalegri. Með því móti hefur lesandinn beinan aðgang að síðunni og flestar skoðanir fá að njóta sín. 

Lesa meira Tökum þátt í umræðunni...

   

Mótmælum í hádeginu !

Borgarahreyfingin hvetur fólk að sjálfsögðu til að fjölmenna að Íslandsbanka Kirkjusandi kl 12:15 í dag !

Vegna fjölda áskorana hefjast bílamótmæli kl 12:15 í stað kl 12:00 í dag, þriðjudag. Bílamótmæli byrja fyrir utan Íslandsbanka Kirkjusandi og ætla þeir sem mæta að flauta í 1 mínútu aukalega vegna nýráðins flokksgæðings innan bankakerfisins íslenska.

Yfirlýsing NÍ: Í dag eru 16.999 atvinnulausir skv. vef Vinnumálastofnunar. Auðvitað hefur samtryggingarkerfi fjórflokksins sett enn einn gæðinginn á ríkisjötuna. Því ætlar Nýtt Ísland að hvetja alla sem mæta í dag til að flauta aukalega eina mínútu fyrir utan Íslandsbanka til heiðurs nýráðnum stjórnarformanni bankans, flokksgæðingnum Friðriki Sophussyni. Athyglisvert er að upplifa hvernig stjórnvöld hafa afhent fólkinu í landinu skuldir og óreiðu þeirra sjálfra og hrungerenda og einnig hvernig stjórnvöld hafa ákveðið að fólkið semji  beint við hrungerendur (bankastofnanir og lánafyrirtæki). Nýtt Ísland hvetur fólk til að rísa upp og neita þessu óréttlæti og fólkið standi saman um að mótmæla óréttlætinu"

Lesa meira Mótmælum í hádeginu !

   

Stjórnarfundur þriðjudaginn 26.jan. kl 17:30

Stjórnarfundur BH þriðjudaginn 26.janúar kl 17:30

Dagskrá:

Lesa meira Stjórnarfundur þriðjudaginn 26.jan. kl 17:30

   

Síða 12 af 17

Dagskrá Hússins

september 2010
s m þ m f f l
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2